Sæbjörg Eva Hlynsdóttir
Nemandi í Skapandi tónlistarmiðlun og klassískri hljóðfærakennslu í tónlistardeild LHÍ
Upplýsingar
Sæbjörg Eva er nemandi á 4. ári við Listaháskóla Íslands í Skapandi tónlistarmiðlun og Klassískri hljóðfærakennslu. Aðalhljóðfæri Sæbjargar er þverflauta og hefur hún stundað nám í flautuleik frá 7 ára aldri og lauk framhaldsprófi á þverflautu árið 2018.
Einnig hefur Sæbjörg lokið miðprófi á saxófón og grunnprófi í píanóleik. Hún lærði hjá Maríönnu Másdóttur við Tónlistarskóla Rangæinga á Hvolsvelli þar til hún hóf nám við Listaháskólann 2019.
Síðan 2019 hefur Sæbjörg starfað að hluta sem hljóðfærakennari við Tónlistarskóla Rangæinga og Skólahljómsveit Grafarvogs og hefur þaðan öðlast sýn á tónlistarkennslu frá nýju sjónarhorni.
Allir fyrirlestrar - Sæbjörg Eva Hlynsdóttir
Umræðutorg I: Tónlistarskóli framtíðar
08 sep 2022
11:00