Upplýsingar
Elfa Lilja Gísladóttir er tónlistarkennari hjá Tónskóla Sigursveins og verkefnastjóri List fyrir alla, barnamenningarverkefnis á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytisins.
Elfa Lilja lauk burtfarar- og kennaraprófi í píanóleik og í framhaldinu mastersnám í tónlist og hreyfingu við Mozarteum tónlistarháskólann í Salzburg.
Elfa Lilja hefur í áratugi kennt börnum tónlist og hreyfingu bæði hjá Kramhúsinu, leik- grunn- og háskólum og hjá Tónskóla Sigursveins auk þess að þjálfa kennara í grunnþáttum tónlistar bæði á vettvangi og í háskólaumhverfinu.
Upptakturinn sem hér verður fjallað um er tónsköpunarverkefni fyrir börn og ungmenni er eitt þeirra verkefna sem Elfa Lilja hefur stýrt frá upphafi en verkefnið er á vegum Hörpu tónlistarhúss.
10 ára afmælismyndband
Allir fyrirlestrar - Elfa Lilja Gísladóttir
Umræðutorg III: Samstarfsverkefni tónlistarskóla
08 sep 2022
15:15